Húðin er stærsta líffærið
16.1.2012
|
Fríða Kristjánsdóttir
Nú þegar veturinn er í hámarki er nauðsynlegt að hlúa vel að húðinni enda er hún stærsta líffærið okkar.
Þurrkur,viðkvæmni og flagnandi húð eru algengir fylgikvillar íslenska vetrarins. Því er mjög nauðsynlegt fyrir okkur konurnar að hugsa vel um húðina og hreinsa hana og næra reglulega með réttum kremum. Mikilvægt er að nota mildan kornahreinsi og næringar- og rakamaska reglulega til að halda áferð húðarinnar mjúkri og fallegri.
Við sem búum á norðlægum slóðum erum sífellt að fara inn og út úr köldu veðri inn í heit upphituð húsakynni
og þessar aðstæður geta skapa mikið álag fyrir háræðarnar og valdið þurrki og ójafnvægi í húðinni.
Góð ráð til að halda húðinni heilbrigðri og fallegri:
-Drekka mikið vatn.
-Hvílast vel.
-Regluleg hreyfing. Gott að svitna.
-Dagleg, góð umhirða húðarinnar.
-Hollt matarræði.
-Sauna, frábær leið til að gera vel við húðina.
-Vítamín allan ársins hring.
-Regluleg andlitsböð.
-Í andlitsbaði sameinast hvíld í þægilegu og notalegu umhverfi ásamt yfirborðshreinsun, góðri djúphreinsun, plokkun á brúnir (eða vax) og unaðslegu nuddi á andliti, bringu og herðar ásamt höfuðnuddi. Í lok meðferðar er settur á andlitsmaski sem hentar hverri húðgerð fyrir sig.
Bókaðu endilega tíma hjá mér í Baðhúsinu. Ég mun dekra við húðina þína og gefa þér ráð til að líta enn betur út.
Vertu velkomin.
Fríða Kristjánsdóttir
Snyrtifræðingur
